Jamm og já! Þá er maður kominn á Eyrina aftur, var í Kelduhverfinu
um helgina hjá Maestro Bjarka. Fór á þorrablót þar, alveg hrein og
tær snilld! Þar voru Jónas Þór og Bjarki í gríðarlega góðu ástandi,
alveg ótrúlegt hvernig er hægt að vera svona drukkinn og samt verið
"gáfaður" eins og Jónas vildi meina!
Síðan spilaði ég í gær með Mfl. á móti KA, skemmst frá því að segja
að þar höfðum við sigur! Ég skoraði meira að segja í 1-0 sigri,
spilaði bara síðustu 20 mínúturnar samt. En gaman að segja frá því
að við Aron erum með flest mörk í Mfl. miðað við spilaðar mínútur,
og stefnum á að halda því!

Svo fór maður í skólann í dag, mætti í Eðlisfræði hjá Brynjari. Sá
maður er náttúrulega snillingur, en ég hefði nú alveg eins getað
sofið eins og Jón Ágúst ákvað að gera, helvítis murturinn! Það var
ekkert gert í þessum tíma, ég bara spilaði FM og reiknaði svo 2
auðveld dæmi.
Var síðan áðan í Bónus með Jóni og Svölu. Hún er svo magnaður
ökumaður hún Svala mín, það er alveg leitun að öðru eins. Við Jón
vorum sko aldrei hræddir, og mjög öruggir þarna í bílnum með
henni!

En fyrir helgi gerði maður voðalega lítið. Fór á æfingu með Magna,
ásamt tvöföldum Stebba og Gunna J. Það var fínt, sérstaklega að
taka útihlaupið fyrir æfinguna. Hef aldrei gert neitt jafn
skemmtilegt!

Annars fara MA-ingarnir að koma aftur, æ, æ, æ.
Þetta er búin að vera yndisleg vika, alltaf nóg pláss á
bílastæðunum, lítil sem engin umferð þegar maður er að fara í
skólann, lítill hávaði á vistinni, engin biðröð í mötuneytinu,
engar nördalegar samræður í matsalnum um æxlunargetu þvottabjarna
eða eitthvað álíka, og yfir höfuð bara mjög lítið af slæmu fólki
hérna á vistinni. Og engir hommar. Og enginn með trefil.
Var að byrja í fjarnámi í Stæ 303, er ekki viss um að ég geti það.
Þetta er eitthvað sem ég verð að fara í tíma í sýnist mér, voðalega
flókið. Vona bara að ég geti tekið eitthvað annað í fjarnámi, tala
við Ásdísi á morgun!
En veit einhver fyrir víst hvort það er Hlíðarbær á föstudaginn? Sú
saga gengur, en ekkert staðfest um það. Síðan held ég að það sé
Laugamót á næsta laugardag, og svo er leikur við Þór á sunnudaginn!
Þetta verður alveg snilld. Við ætlum að taka þetta helvítis mót, í
eitt skipti fyrir öll. Held að ég, Hinrik, Ásgeir og einhverjir
verði í liðinu. Alveg frambærilegt sumsé.
En kommentið eitthvað fallegt, rífist eða segið góðar sögur. Trúi
ekki öðru upp á ykkur en þið getið það. Allavega ætti Ragnhildur
Hólm að geta það. Best ég taki það líka fram að hún gengur nú bara
undir nafninu "Hólmarinn", að eigin ósk. Bið ég ykkur að virða það
og taka þetta nafn hennar upp.